![Víg Grettis Ásmundarsonar](http://strakar.flugeldar.is/cdn/shop/products/Flugeldar-VigGrettis_470x_9606a159-937f-42f5-b2bc-6dfccc0d738a_{width}x.webp?v=1672244343)
Grettir er gríðarlega vígalegur þar sem hann þeytir frá sér öflugum gullpálmum með silfurendum. Leikur æsist þegar að við bætast silfursprengingar á enda gullsins með braki og brestum. Hann bætir svo um betur þegar fallegir gullormar þeytast upp og springa með miklum látum. Allt endar svo í meiriháttar silfurveislu sem fyllir himinn. Grettir er engu líkur.